Körfubolti

NBA í nótt: Enn tapar Detroit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rodney Stuckey og Richard Hamilton í leiknum í nótt.
Rodney Stuckey og Richard Hamilton í leiknum í nótt. Mynd/AP

Detroit tapaði í nótt sínum tólfta leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta er liðið tapaði fyrir Philadelphia, 104-94.

Liðinu hefur ekki gengið verr síðan í apríl árið 1994 og var þjálfari liðsins, John Kuester, ekki ánægður með sína menn.

„Það olli mér miklum vonbrigðum að sjá að menn virtust ekki leggja allt í þetta, sérstaklega í fyrri hálfleik," sagði hann. „Við sýndum svo smá lit í seinni hálfleik en það var allt of seint."

Allen Iverson gat ekki leikið með Philadelphia vegna meiðsla en hann lék um tíma með Detroit á síðasta tímabili.

Philadelphia var strax með sextán stiga forystu, 26-10, eftir fyrsta leikhluta og bætti tíu stigum við þá forystu í öðrum leikhluta. Detroit náði svo aldrei að ógna forystu gestanna að ráði í síðari hálfleik.

Elton Brand var stigahæstur hjá Philadelphia með 25 stig en þeir Andre Iguodala og Samuel Dalembert komu næstir með sextán stig hvor.

Ben Gordon skoraði 20 stig fyrir Detroit og Carlos Villanueva nítján. Byrjunarliðsmennirnir skoruðu ekki nema 34 stig fyrir liðið allan leikinn.

Orlando vann Atlanta, 113-81, þar sem JJ Redick skoraði sautján stig í fjarveru Vince Carter.

Oklahoma City vann Indiana, 108-102. Kevin Durant skoraði 40 stig fyrir Oklahoma City sem vann sinn sjöunda sigur í síðustu níu leikjum.

Charlotte vann Memphis, 89-87. Gerald Wallace tryggði sínum mönnum sigurinn í blálokinn er hann blakaði boltanum í körfuna efti rað Raymond Felton hafði reynt skot að körfunni.

Chicago vann Minnesota, 110-96. Joakim Noah skoraði 20 stig og tók níu fráköst og þá var Kirk Hinrich með 20 stig og sjö stoðsendingar fyrir Chicago.

Utah vann Dallas, 111-93. Deron Williams skoraði 20 stig og gaf níu stoðsendingar fyrir Utah og þá var Carlos Boozer með fimmtán stig.

Houston vann New York, 105-96. Luis Scola skoraði 23 stig og Aaron Brooks 20.

Sacramento vann Denver, 102-100, þar sem Tyreke Evans skoraði sigurkörfuna þegar 0,7 sekúndur voru til leiksloka. Hann skoraði alls 27 stig í leiknum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×