Fótbolti

Sevilla náði jafntefli í Moskvu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Negredo, markaskorari Sevilla, er hér í loftbardaga við Igor Akinfeev, markvörð CSKA.
Negredo, markaskorari Sevilla, er hér í loftbardaga við Igor Akinfeev, markvörð CSKA.

Fyrri leik kvöldsins í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu er lokið en Sevilla sótti CSKA Moskvu heim.

Spænska liðið stendur ansi vel að vígi eftir leikinn sem endaði með 1-1 jafntefli.

Alvaro Negredo kom Sevilla yfir á 25. mínútu en Mark Gonzalez jafnaði metin fyrir CSKA á 66. mínútu með þrumufleyg fyrir utan teig sem hafnað efst í markhorninu.

Síðari leikur kvöldsins í Meistaradeildinni er síðan stórslagur Inter og Chelsea á San Siro.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×