Næst hægt að reyna að sex árum liðnum 13. desember 2010 02:00 Líkan af geimrannsóknargervihnettinum Akatsuki var til sýnis á blaðamannafundi í síðustu viku.Fréttablaðið/AP
Japanskar geimrannsóknir urðu fyrir áfalli þegar mistókst að koma rannsóknargeimfari á sporbaug um Venus í síðustu viku. Geimfarið átti að vera á ferð í tvö ár og safna gögnum. Rannsóknarfarið kallast Akatsuki, en nafnið merkir „dögun“. Á blaðamannafundi, sem haldinn var á þriðjudag þegar farið náði á áfangastað, upplýstist að samband hefði verið stopult við Akatsuki fyrr um daginn. Í gær kom svo í ljós að ekki hafði tekist að koma geimfarinu á braut um Venus þegar vélar þess voru ræstar á þriðjudag. Geimrannsóknin var á vegum japönsku geimrannsóknarmiðstöðvarinnar (JAXA) sem sögð er búa við fremur þröngan kost, en verkefnið er með þeim stærstu sem JAXA hefur ráðist í. Akatsuki hefði orðið fyrsti japanski hnötturinn til að komast á sporbaug um aðra plánetu. Þetta er þó ekki fyrsta tilraun Japana því þeir reyndu að koma rannsóknarhnetti til Mars árið 1998. Sú tilraun gekk illa vegna tæknilegra erfiðleika og var að lokum blásin af árið 2003. Fulltrúar JAXA segja hins vegar að fullt samband sé komið á ný við Akatsuki þar sem hann er nú á sporbaug um sólina, eftir að aðdráttarafl hennar krækti í geimfarið. „Geimfarið virðist vera í lagi og mögulega getum við gert aðra tilraun til að koma því á sporbaug þegar það fer aftur framhjá Venusi eftir sex ár,“ sagði Hitoshi Soeno, vísindamaður hjá JAXA. - óká
Venus Mest lesið Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent Fatasöfnunargámar Rauða krossins fjarlægðir á næstu dögum Innlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent „Hefðbundið eftirlit er ekki viðhaft að ástæðulausu“ Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Innlent Fleiri fréttir 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Sjá meira