Fótbolti

Aguero ætlar að framlengja við Atletico

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Þó svo búið sé að orða Argentínumanninn Sergio Aguero við mörg stórliðin undanfarin ár er ekkert sem bendir til annars en að hann verði áfram í herbúðum Atletico Madrid.

Spænskir fjölmiðlar greina nefnilega frá því í dag að Aguero muni framlengja samningi sínum við félagið til ársins 2015. Hann mun fá 6 milljónir evra í árslaun.

Atletico ætlar sér stóra hluti á komandi árum og félagið hefur verið duglegt að ganga frá samningum við lykilmenn á síðustu vikum.

Hægt verður að kaupa hinn 22 ára gamla leikmann frá Atletico þó svo hann framlengi. Þá þarf reyndar að punga út heilum 60 milljónum evra sem er engin skiptimynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×