Fótbolti

Messi: Finn ekkert til í ökklanum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Lionel Messi er búinn að jafna sig af ökklameiðslunum sem hann hlaut um daginn og lék síðasta hálftímann gegn Rubin Kazan í Meistaradeildinni í gær.

Messi segir að allt hafi gengið vel hjá sér í leiknum og ökklinn sé ekki að trufla lengur.

"Ég er mjög ánægður með batann sem ég hef náð á skömmum tíma. Ég finn ekki fyrir neinum sársauka," sagði Messi en það er ótrúlegt miðað við hvað hann virtist hafa meiðst illa.

Messi ætti samkvæmt þessu að vera í byrjunarliði Barca í næsta leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×