Fótbolti

Almeria rak þjálfarann strax eftir 8-0 tap fyrir Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það dugði ekki að setja fjóra menn á Lionel Messi í kvöld.
Það dugði ekki að setja fjóra menn á Lionel Messi í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Almeria rak í kvöld þjálfara sinn Juan Manuel Lillo strax eftir að liðið tapaði 8-0 á móti Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Juan Manuel Lillo fékk fréttirnar áður en hann yfirgaf leikvanginn í kvöld en stjórnarmenn Almeria héldu neyðarfund strax eftir leikinn.

„Ástæðan er slakt gengi liðsins síðustu vikur og snýst aðeins um árangur liðsins inn á vellinum. Liðið er komið niður í fallsæti og það þurfti eitthvað að gerast," stóð í yfirlýsingu á heimasíðu Almeria.

Hinn 45 ára gamli Lillo gat lítið gert þegar Barcelona sundurspilaði lið hans í kvöld en Almería-liðið réð ekkert við Messi sem skoraði þrjú og lagði upp önnur tvö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×