Fótbolti

Iniesta: Við vitum hvað þarf að gera

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar

Andres Iniesta, leikmaður Barcelona, sagði eftir sigurinn á Real Madrid í toppslagnum að nú væru sjö leikir eftir og þá leiki þyrfti að vinna áður en bikarinn sé þeirra.

„Liðið veit hvað það þarf að gera. Við erum meðvitaðir um að við sigruðum mikilvægan leik í gær, en það eru sjö leikir eftir og við megum ekki við því að slaka neitt á núna," sagði Iniesta.

Andres Iniesta segir einnig að allir leikmenn verði að halda einbeitingu þar til tímabilinu lýkur því Barcelona-liðið megi ekki við neinum mistökum.

„Staðan okkar er betri núna en það eru mjög erfiðir leikir framundan og við þurfum að sigra þá til að verða meistarar. Það er mikilvægt að allir haldi einbeitingu," sagði Iniesta að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×