Fótbolti

Mourinho er faðir Real Madrid-fjölskyldunnar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Cristiano Ronaldo er duglegur að lýsa því yfir hversu gott lífið sé hjá Real Madrid þessa dagana. Hann segir fína fjölskyldustemningu ríkja og segir að José Mourinho sé faðir Real Madrid-fjölskyldunnar.

"Mourinho er þjálfari með skýrar hugmyndir og hann hefur hjálpað okkur mikið. Hann er faðir Real Madrid-fjölskyldunnar. Ég nýt þess að æfa undir hans stjórn og ég efast ekkert um að hann sé hamingjusamur hérna," sagði Ronaldo sem hefur fengið mikið hrós frá Mourinho.

"Það er alltaf gott að fá hrós og sérstaklega frá þjálfaranum sem er hershöfðinginn í hópnum. Það gengur vel hjá mér núna og ég vil halda þessu góða gengi áfram. Liðið er líka að bæta sig og á enn eftir að styrkjast."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×