Fótbolti

Verður óglatt af því að ræða um Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Búlgarinn þegar hann var upp á sitt besta.
Búlgarinn þegar hann var upp á sitt besta.

Hristo Stoichkov var þekktur á ferli sínum fyrir að tala opinskátt og það hefur ekkert breyst eftir að hann hætti í boltanum.

Stoichkov, sem lék lengi með Barcelona, þolir hreinlega ekki þegar fólk biður hann að tjá sig um Real Madrid.

"Mér verður óglatt ef fólk vill tala við mig um Real Madrid. Mér hefur aldrei líkað að þurfa að tala um þetta lið. Þið getið spurt mig spurninga um önnur lið, þá svara ég," sagði Búlgarinn sem er afar hrifinn af núverandi Barcelona-liði.

"Barcelona verður alltaf stærsta félag heims. Barca mun líka skora mest í deildinni í ár."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×