Enski boltinn

Fran Merida á leið frá Arsenal

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fran Merida í leik með Arsenal.
Fran Merida í leik með Arsenal. Nordic Photos / Getty Images
Hinn stórefnilegi Fran Merida er sagður vera á góðri leið með að ganga til liðs við Atletico Madrid á Spáni.

Merida er á mála hjá Arsenal á Englandi en hann mun hafa hafnað nýju samningstilboði frá félaginu og samþykkt að ganga til liðs við Atletico þegar tímabilinu lýkur.

Annar leikmaður Arsenal, Philippe Senderos, mun einnig vera áhugasamur um að komast í burtu frá félaginu enda lítið fengið að spila að undanförnu.

Hann var í láni hjá AC Milan á síðustu leiktíð en sneri aftur til Arsenal og lék með félaginu undir lok tímabilsins.

Til stóð að hann myndi fara til Everton í sumar fyrir þrjár milljónir punda en ekkert varð að sölunni eftir að Arsenal fór fram á meiri pening fyrir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×