Vitali Klitschko hættir á árinu - útilokar ekki að mæta Haye Ómar Þorgeirsson skrifar 23. febrúar 2010 12:15 Bræðurnir Wladimir og Vitali Klitschko. Nordic photos/AFP
WBC-þungavigtarmeistarinn Vitali Klitschko hefur staðfest að hann muni líklega leggja hanskana á hilluna á þessu ári en hinn 38 ára gamli Úkraínumaður er í viðræðum við Rússann Nikolai Valuev um bardaga í maí. Klitschko hefur alltaf sagt að hann muni ekki mæta bróður sínum Wladimir Klitschko í hringnum en það hefur hins vegar lengi verið draumur þeirra bræðra að halda öllum þungavigtarmeistarabeltunum innan fjölskyldunnar á sama tíma. Þar sem Vitali er handhafi WBC-beltisins og Wladimir IBF -og WBO-beltanna þá vantar aðeins WBA-beltið í safnið og það er í höndum Bretans David Haye sem stendur. Haye mætir Bandaríkjamanninum John Ruiz í byrjun apríl í sinni fyrstu meistaravörn og Vitali Klitschko hefur gefið í skyn að hann muni reyna að mæta sigurvegaranum úr þeim bardaga áður en hann hættir. Lengi hefur staðið til að Haye myndi mæta öðrum hvorum Klitschko-bróðurnum en alltaf hefur eitthvað komið upp á til þess að koma í veg fyrir að af bardaganum yrði en það er greinilega enn von.
Box Erlendar Mest lesið „Mjög erfitt þegar hann hætti að geta verið sá maður“ Íslenski boltinn Vill vinna titilinn á eigin forsendum Formúla 1 Tekur undir með Ferguson varðandi Bosnich Enski boltinn Viðurkennir mistök en segir lögregluna hafa „lamið hundinn úr sér“ Sport Haukur gekk frá lærisveinum Guðmundar Handbolti „Alltaf gaman að spila í KA heimilinu” Handbolti HK lagði Íslandsmeistarana og Grótta vann í Breiðholti Handbolti Uppgjörið: FH - Víkingur 0-3 | Gestirnir fóru á kostum í Krikanum Íslenski boltinn „Okkur er sama þótt við værum að spila gegn liði ömmu okkar“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA - Haukar 26-34 | Stórsigur gestanna á Akureyri Handbolti Fleiri fréttir Vill vinna titilinn á eigin forsendum Viðurkennir mistök en segir lögregluna hafa „lamið hundinn úr sér“ Tekur undir með Ferguson varðandi Bosnich „Alltaf gaman að spila í KA heimilinu” HK lagði Íslandsmeistarana og Grótta vann í Breiðholti Uppgjörið: KA - Haukar 26-34 | Stórsigur gestanna á Akureyri „Okkur er sama þótt við værum að spila gegn liði ömmu okkar“ Haukur gekk frá lærisveinum Guðmundar Uppgjörið: FH - Víkingur 0-3 | Gestirnir fóru á kostum í Krikanum Guðmundur Bragi gerði gæfumuninn Nýr forstjóri kvennaliðs Chelsea kemur úr óvæntri átt Svarar Ronaldo: „Hann er langt í burtu“ „Mjög erfitt þegar hann hætti að geta verið sá maður“ Segir Gomes ekki fenginn í stað Hákonar 115 kærur Manchester City teknar fyrir á mánudag 50 stelpur keppa um metfé í Valorant Biðja Piastri um að styðja Norris í baráttunni um titilinn Lést í hlaupi til minningar um systur sína Gæti fengið langt bann fyrir rasískt grín í garð liðsfélaga Ein sú besta framlengir um þrjú ár Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Pochettino verður sá launahæsti í sögunni Var með ferðatöskuna tilbúna af því að Liverpool ætlaði að kaupa hann Myndatökumaður segir Emiliano Martínez hafa ráðist á sig Given vorkennir Heimi „Ég er mjög spenntur fyrir þessu fyrirkomulagi“ Haraldur skammar Pawel: „Ömurlegt pólitískt útspil“ Ronaldo gagnrýnir Ten Hag: Man Utd þarf að endurbyggja allt Mikil sorg hjá Haaland Hungrið enn til staðar hjá Gunnari: Með augun á næsta bardaga Sjá meira