Fótbolti

Kemur þriðja þrennan í röð hjá Messi í kvöld?

Arnar Björnsson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. Mynd/AFP
Lionel Messi gæti í kvöld orðið annar knattspyrnumaðurinn í sögu spænsku 1. deildarinnar til að skora þrennu í þremur leikjum í röð. Barcelona mætir þá Osasuna á heimavelli og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.

Fyrir 75 árum skoraði Isidoro Lángara þrennu í þremur leikjum í röð fyrir Real Oviedo. Messi er búinn að skorað 34 mörk fyrir Barcelóna í vetur og vantar 4 mörk til að jafna árangur sinn á síðustu leiktíð.

Messi vantar ennþá 14 mörk til að bæta árangur Ronaldinho sem skoraði 47 mörk fyrir Barcelóna leiktíðina 1996-97.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×