Fótbolti

Guardiola og Zlatan báðir dæmdir í eins leiks bann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fernando Soriano sýnir hvernig að hans mati Zlatan Ibrahimovic beitti olnboganum þegar hann fékk rauða spjaldið á móti Almeria.
Fernando Soriano sýnir hvernig að hans mati Zlatan Ibrahimovic beitti olnboganum þegar hann fékk rauða spjaldið á móti Almeria. Mynd/Getty Images

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona og sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic verða fjarri góðu gamni þegar Barcelona tekur á móti Valencia í spænsku deildinni um helgina.

Þeir félagar voru báðir reknir upp í stúku í jafnteflisleiknum við Almeria um síðustu helgi.

Barcelona ætlar reyndar að áfrýja banninu enda er ekki hægt að sjá annað á sjónvarpsupptökum að Zlatan hafi ekki slegið leikmann Almeria viljandi. Guardiola fékk síðan rautt spjald fyrr að mótmæla dómnum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×