Fótbolti

Iniesta ósáttur við dómarann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Andres Iniesta, leikmaður Barcelona, var afar ósáttur við dómgæsluna í leik Barcelona og Getafe um helgina.

Bæði Rafael Marquez og Andres Iniesta fengu að líta rauða spjaldið í leiknum en Barca náði þrátt fyrir það að landa 2-1 sigri í leiknum. Barcelona er því með fimm stiga forskot á toppi spænsku deildarinnar.

„Dómarinn fór afar illa með okkur en það er lítið við því að gera. Við verðum að halda áfram að skila okkar vinna og taka stig úr hverjum leik," sagði Iniesta sem er sáttur við sinn leik.

„Mér líður vel og er að ná fínum stöðugleika í minn leik. Það er erfitt að bera frammistöðuna saman við síðasta tímabil en ég vil spila betur en ég gerði í fyrra."



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×