Fótbolti

Sacchi: Mourinho er einstakur þjálfari

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Arrigo Sacchi, fyrrum þjálfari AC Milan, segir að José Mourinho sé algjörlega einstakur þjálfari sem eigi engan sinn líkan á þessari plánetu.

"Svona einstaklingar eru þess verðir að þeir séu skoðaðir ofan í kjölinn. Hann er alveg einstakur. Það er ekki til sá þjálfari sem er líkur honum," sagði Sacchi en hann starfaði einnig fyrir Real Madrid á sínum tíma og líst vel á Mourinho sem þjálfara liðsins.

"Hann er leiðtogi, kraftur liðsins, stjórinn og maðurinn sem skapar. Hann kann betur en aðrir þjálfarar að vinna með sjálfstraust leikmanna. Hann stýrir liðum snilldarlega taktískt og sálfræðilega."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×