Innlent

Varðstöð kom í veg fyrir strand

Varðstjórum stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar tókst í vikunni sem leið að koma í veg fyrir að bátur strandaði á Lönguskerjum, vestarlega í Skerjafirði í Reykjavík. Kölluðu varðstjórar í bátinn til að aðvara skipverja og leiðbeindu honum síðan frá skerjunum.

Í færslu á vef Landhelgisgæslunnar segir að skipstjóri bátsins hafi um helgina komið í heimsókn í stjórnstöðina og þakkað aðstoðina. Hann útskýrði að siglingatæki bátsins hefði bilað í sjóferðinni.- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×