Innlent

Óttast kostnað af sumarhúsum

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Meirihluti bæjarstjórnar Stykkishólms hefur samþykkt að skipulagt verði svæði fyrir frístundahús við Arnarborg, norðaustan við svæði sem Skipavík hefur til umráða. Lóðirnar eiga að vera til almennrar úthlutunar.

Þrír bæjarfulltrúar sem voru á móti sögðu framboð slíkra lóða í nágrannasveitarfélaginu Helgafellssveit geta annað eftirspurn til almennrar úthlutunar. „Þess fyrir utan erum við sammála því sjónarmiði Skipulags- og bygginganefndar að tilkostnaður við umrætt skipulag verði of hár miðað við mögulegar tekjur," bókaði minnihlutinn. - gar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×