Fótbolti

Benzema farið að líða betur með hjálp Mourinho

Elvar Geir Magnússon skrifar

Karim Benzema segir að sér sé farið að líða mun betur í herbúðum Real Madrid með hverri vikunni. Hann skoraði gegn Ajax í Meistaradeildinni í síðustu viku og lífið orðið léttara.

Benzema hefur ekki náð að standa undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar þegar hann var keyptur á Santiago Bernabeu. Hann virðist þó á réttri leið og þakkar það þjálfaranum Jose Mourinho.

„Mourinho er mjög ólíkur öllum þeim þjálfurum sem ég hef starfað með á ferlinum. Nú hef ég starfað með honum í þrjá mánuði og er á leið í rétta átt. Hann hjálpar mér að taka framförum og ná því besta fram," segir Benzema.

„Ég er ánægður hérna. Það er í mínum höndum að fá hann til að velja mig í liðið. Mér líður vel, skoraði á þriðjudaginn og tók mikinn þátt í spilinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×