Innlent

Drukknir á skytteríi í óleyfi

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.

Tilkynnt var til lögreglunnar á Vestfjörðum um síðustu helgi að þrír menn væru að skjóta fugla í Æðey og væru drukknir í ofanálag. Ekki tókst betur til hjá veiðimönnunum en að gúmmítuðran sem þeir voru á varð vélarvana og þurftu þeir að leita aðstoðar hjá ábúandanum sem þeir höfðu verið að skjóta hjá í óleyfi.

Þegar mennirnir komu í höfn á Ísafirði tók lögreglan á móti þeim og lagði hald á vopn þeirra. Mál þeirra er nú til rannsóknar hjá lögreglunni. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×