Fótbolti

Í fyrsta sinn sem lið Jose Mourinho tapar með meira en 3 mörkum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jose Mourinho og Pep Guardiola heilsast fyrir leikinn.
Jose Mourinho og Pep Guardiola heilsast fyrir leikinn. Mynd/AFP
Stórsigur Börsunga á Real Madrid á Camp Nou í kvöld var sögulegur því þetta var í fyrsta sinn í tíu ára þjálfaratíð Jose Mourinho þar sem lið hans tapar með meira en þriggja marka mun.

Lið Mourinho höfðu aðeins fjórum sinnum áður tapað með þriggja marka mun en það hafði gerst einu sinni hjá Benfica, Porto, Chelsea og Inter.

Real Madrid hafði ekki tapað á tímabilinu en tókst enn ekki að vinna Barcelona-liðið sem hefur unnið síðustu fimm El Clasico leiki með markatölunni 16-2.

Það er ekki nóg með að Cristiano Ronaldo hafi ekki tekist að skora í þremur El Clasico leikjum þá hefur Real ekki skorað með hann innanborðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×