Fótbolti

Ronaldo vill halda Pellegrini hjá Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Nordic Photos / AFP
Cristiano Ronaldo vill að Manuel Pellegrini verði áfram knattspyrnustjóri Real Madrid næstu tvö eða þrjú árin.

Real hefur ekki þótt standa undir væntingum undir stjórn Pellegrini í vetur en engu var til sparað í leikmannakaupum liðsins síðasta sumar eins og frægt er.

Liðið gerði til að mynda Cristiano Ronaldo að dýrasta leikmanni heims en sjálfur sagðist hann styðja Pellegrini.

„Mér líður vel að spila undir stjórn Pellegrini. Við höfum verið að bæta okkur síðastliðnar vikur og það er enn allt opið í deildinni," sagði Ronaldo við spænska fjölmiðla.

„Við erum aðeins einu stigi á eftir efsta liðinu. Ég er sannfærður um að við munum vinna síðustu fimm leiki okkar á tímabilinu og verða meistarar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×