Körfubolti

Nelson ætlar ekki að hætta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sigursælasti þjálfarinn í sögu NBA-deildarinnar, Don Nelson, ætlar ekki að láta af þjálfun Golden State Warriors heldur stefnir hann ótrauður á að stýra liðinu á næsta tímabili.

Nelson á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið og forseti félagsins gerir ekki ráð fyrir öðru en að Nelson klári þann samning.

Helsta markmið Nelson næsta vetur er að gera Andris Biedrins að betri vítaskyttu. Sá hefur aðeins hitt úr 4 af 25 vítaskotum sínum á tímabilinu.

Nelson segir leikmanninn óttast það að keyra að körfunni af ótta við að þurfa að fara á vítalínuna.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×