Innlent

Viðskiptavefur opnaður um miðjan mánuð

Halldór Jörgensson
Halldór Jörgensson

Stefnt er að því að endurútreikningar einföldustu gengislánasamninga Lýsingar verði aðgengilegir um miðjan mánuðinn.

„Aðalmálið er að fólk fái rétta stöðu," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Lýsingar.

„Frumvarp í smíðum gefur vonir um að hægt verði að ganga frá langflestum málum á mjög skömmum tíma," segir Halldór.

Lýsing hefur lokið við útreikning einfaldari lána, en prófar nú þann útreikning í tölvukerfum sínum. Halldór segir hins vegar ráð fyrir því gert að viðskiptavefur Lýsingar verði opnaður um miðjan október.

„Fólk getur þá séð sinn útreikning." - óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×