Fótbolti

Kaka er farinn að æfa með Real Madrid á ný

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kaka og Ruud van Nistelrooy grínast á æfingu með Real Madrid.
Kaka og Ruud van Nistelrooy grínast á æfingu með Real Madrid. Mynd/AFP

Brasilíumaðurinn Kaka hefur verið frá vegna meiðsla síðan í lok nóvember en nú sér loksins fyrir endann á fjarveru kappans. Kaka byrjaði að æfa með Real Madrid á gamlársdag.

Hinn 27 ára gamli miðjumaður meiddist á nára í lok nóvember en nú er hann orðinn það góður að hann getur farið að æfa með bolta.

„Kaka virðist vera búinn að ná sér að nárameiðslunum og hann æfði í dag með bolta í fyrsta sinn. Kaka og Cristiano Ronaldo voru saman á seinni hluta æfingarinnar og fóru í gegnum margvíslegar boltaæfingar," sagði í yfirlýsingu frá Real Madrid.

Næsti leikur Real Madrid er á móti Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn en það er ekki orðið ljóst hvort að hann geti verið með í þeim leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×