Körfubolti

Doc verður áfram með Celtics

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Doc Rivers hefur tilkynnt að hann muni halda áfram að þjálfa Boston Celtics næsta vetur en hann hefur komið liðinu í lokaúrslit NBA tvisvar á síðustu þremur árum.

"Doc er frábær þjálfari og ég er yfir mig ánægður að hann ætli sér að halda áfram," sagði Steve Pagliuca, annar eigandi Celtics.

Rivers tók sér drjúgan umhugsunartíma en segir að fjölskyldan hafi hvatt hann til þess að halda áfram.

Einhverjar breytingar verða á Boston-liðinu en Rasheed Wallace er hættur og óvíst er hvort Paul Pierce og Ray Allen verði áfram hjá félaginu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×