Fótbolti

Messi með flugeldasýningu - myndband

Elvar Geir Magnússon skrifar
Lionel Messi, ótrúlegur leikmaður.
Lionel Messi, ótrúlegur leikmaður.

Lionel Messi hefur skorað ellefu mörk í síðustu fimm leikjum Barcelona. Hann skoraði þrennu gegn Real Zaragoza á sunnudagskvöld og sýndi og sannaði að hann er besti fótboltamaður heims.

Smelltu hér til að sjá mörkin úr leiknum en sérstaklega mælum við með öðru markinu sem er augnakonfekt.

Messi skoraði einnig þrennu í síðasta deildarleik sem var gegn Valencia og áður en Zlatan Ibrahimovic skoraði úr víti í leiknum í gær hafði Messi skorað átta síðustu deildarmörk Börsunga.

Annað mark argentínska snillingsins í gær var sérstaklega glæsilegt og eitthvað sem fótboltaáhugamenn mega ekki láta framhjá sér fara. Real Madrid vann leikinn í gær 4-2.

Síðasta mark leiksins kom úr vítaspyrnu sem Messi fékk sjálfur. Zlatan steig á punktinn og náði að skora sitt fyrsta deildarmark síðan 14. febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×