Innlent

Segja brýnt að sinna skurðum

Nokkurskonar skurður. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Nokkurskonar skurður. Myndin tengist ekki fréttinni beint.

Byggðaráð Rangárþings eystra mótmælir fyrirhuguðum niðurskurði á jarðabótastyrkjum vegna upphreinsunar skurða. Heildarlengd skurða í sveitarfélaginu er 1.000 til 1.500 kílómetrar.

Í ályktun ráðsins segir að upphreinsun skurða sé forsenda fyrir búskap í héraðinu.

„Þrátt fyrir að útgjöld við upphreinsun skurða séu dregin saman í eitt eða fleiri ár næst enginn sparnaður þar sem slíkt kallar einungis á stórtækari aðgerðir eftir lengri hlé auk þess sem minnkað viðhald skurða leiðir til verri endingar túna og lélegri uppskeru," segir byggðaráðið, sem kveður ríka hagsmuni af því að dýrmætu ræktunarlandi sé haldið við.- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×