Fótbolti

Mourinho hefur ekki áhuga á Bale

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, segir það ekki vera rétt að hann sé á höttunum eftir Gareth Bale, leikmanni Tottenham.

Bæði ensk og spænsk blöð hafa slegið upp meintum áhuga Mourinho á leikmanninnum en Bale hefur leikið einkar vel í vetur.

"Það er alltaf verið að orða Real við hina og þessa leikmenn. Ég hef lesið þetta um Bale og get sagt að ég er ekki að leita að öðrum vinstri vængmanni," sagðu Mourinho ákveðinn en hann er ánægður með Marcelo í bakverðinum.

"Marcelo hefur marga sóknarhæfileika og er að vaxa sem varnarmaður. Mér líkaði ekki við Marcelo er ég kom því ég hélt að hann gæti ekki varist en mér líkar virkilega við framfarirnar hjá honum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×