Körfubolti

NBA: Þrettán sigrar í röð hjá Cleveland

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers eru heitasta liðið í NBA-deildinni í dag. Liðið vann í nótt sinn þrettánda leik í röð.

Þrettándi sigurinn kom gegn liðinu sem sló það út í fyrra, Orlando. Cleveland nú búið að vinna báðar viðureignirnar gegn Orlando í vetur og er með besta árangurinn í deildinni, 43-11.

LeBron James var eins og svo oft áður aðalmaðurinn hjá Cleveland. Var allt í öllu undir lokin. Gaf sendingu á Shaq sem af troðslu, setti niður tvö stökkskot og reif svo niður mikilvægt frákast.

Hann endaði með 32 stig og 11 stoðsendingar. Hann var enn fremur með flest fráköst hjá liðinu eða 8 stykki.

Úrslit næturinnar:

Cleveland-Orlando  115-106

Denver-San Antonio  92-111

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×