Fótbolti

Torres á bekknum hjá Spáni í dag

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Torres á æfingu í gær, ásamt Carles Puyol.
Torres á æfingu í gær, ásamt Carles Puyol. AFP
Allar líkur eru á því að Fernando Torres verði að verma varamannabekk Spánverja í Suður-Afríku. Evrópumeistararnir hefja leik í dag, gegn Sviss klukkan 14.00.

Andres Iniesta byrjar þó væntanlega leikinn á fimm manna miðju og þá verður David Villa einn í fremstu víglínu.

Vicente Del Bosque, þjálfari, segir að einstök bjartsýni ríki í hópnum fyrir mótið.

"Þetta er algjörlega einstakt. Mörgum finnst þó að Spánn eigi að komast auðveldlega í úrslitaleikinn en svo er ekki. Við þurfum að leggja ótrúlega hart að okkur en þessari skoðun verður erfitt að ryðja út," sagði þjálfarinn.

Ottmar Hitzfeld þjálfar Sviss en hann verður án fyrirliðans og síns besta leikmanns, Alexandrr Frei.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×