Fótbolti

Messi: Ég er engin goðsögn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Menn hafa gengið ansi langt síðustu daga í að hampa Argentínumanninum Lionel Messi. Skal svo sem engan undra þar sem hann er að spila fáranlega vel þessa stundina og hreint ótrúlegt hversu góður hann er. Það gleymist stundum að hann er aðeins 22 ára.

Messi gerir sitt besta til þess að draga úr þessu tali og segir að ekki sé hægt að bera sig saman við bestu menn allra tíma fyrr en hann hafi sannað sig með landsliðinu og náð árangri þar.

„Til þess að verða goðsögn þá þarf maður að vinna heimsmeistarakeppnina. Ég er bara 22 ára og hlutirnir gerast mjög hratt. Ég verð að halda mér á jörðinni," sagði Messi en hann ætlar ekki að láta velgengnina stíga sér til höfuðs.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×