Körfubolti

NBA: Dallas Mavericks vann sinn tólfta sigurleik í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dirk Nowitzki og félagar í Dallas eru á mikill siglingu.
Dirk Nowitzki og félagar í Dallas eru á mikill siglingu. Mynd/AP
Dallas Mavericks vann í nótt sinn tólfta leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið vann 125-112 sigur á Minnesota Timberwolves. Cleveland Cavaliers vann tveggja stiga sigur á San Antonio Spurs þrátt fyrir að leika án stórstjörnunnar LeBron James.

Shawn Marion var með 29 stig og 14 fráköst í sigri Dallas Mavericks, Dirk Nowitzki skoraði 24 stig og Caron Butler var með 23 stig. Dallas-liðið hefur unnið 12 af 13 leikjum síðan að liðið fékk Butler og Brendan Haywood í skiptum frá Washington Wizards

Al Jefferson var með 36 stig og 13 fráköst fyrir Minnesota í sínum fyrsta leik eftir að hafa farið í tveggja leikja bann fyrir að keyra undir áhrifum.

Mo Williams tryggði Cleveland Cavaliers 97-95 sigur á San Antonio Spurs á vítalínunni. LeBron James var hvíldur annan leikinn í röð en topplið NBA-deildarinnar hafði tapað hinum.

Mo Williams var með 17 stig fyrir Cleveland sem vann sinn fimmtugasta leik á tímabilinu. Manu Ginobili skoraði 38 stig fyrir Spurs sem lék án Tony Parker sem verður frá í sex vikur vegna handarbrots.

Danilo Gallinari var með 27 stig og David Lee bætti við 19 stigum og 13 fráköstum þegar New York Knicks vann 99-98 sigur á Atlanta Hawks. Josh Smith var með 25 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar hjá Atlanta.

Þetta var þriðji sigur New York á Atlanta-liðinu í vetur en um tíma virtist vera sem Al Horford hefði tryggt Hawks sigur. Dómararnir skoðuðu hinsvegar vídeó-upptöku af lokasekúndunni og þá kom í ljós að skotið kom of seint.

Darren Collison var með 16 stig og 20 stosðendingar þegar New Orleans Hornets vann 135-131 sigur á Golden State Warriors. Marcus Thornton og David West skoruðu báðir 28 stig fyrir New Orleans líkt og þeir Anthony Morrow og Reggie Williams hjá Golden State. Morrow hitti úr öllum sex þriggja stiga skotum sínum.

Mike Conley og Rudy Gay voru báðir með 21 stig þegar Memphis Grizzlies vann 107-101 sigur á New Jersey Nets. Courtney Lee skoraði 30 stig fyrir Nets.

Úrslit leikja í NBA-deildinni í nótt:

Cleveland Cavaliers-San Antonio Spurs 97-95

New York Knicks-Atlanta Hawks 99-98

Memphis Grizzlies-New Jersey Nets 107-101

Minnesota Timberwolves-Dallas Mavericks 112-125

New Orleans Hornets-Golden State Warriors 135-131



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×