Körfubolti

Keflavík fór létt með KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bryndís Guðmundsdóttir, leikmaður Keflavíkur.
Bryndís Guðmundsdóttir, leikmaður Keflavíkur. Mynd/Daníel
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna í dag og unnu topplið Hamars og Keflavíkur bæði sína leiki.

Keflavík vann öruggan sigur á KR, 92-49. Jacquline Adamshick skoraði 30 stig fyrir KEflavík og tók tólf fráköst. Bryndís Guðmundsdóttir skoraði fjórtán stig og tók fimmtán fráköst.

hjá KR var Helga Einarsdóttir stigahæst með átján stig en Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir kom næst með fjórtán. Báðar tóku ellefu fráköst í leiknum.

Jaleesa Butler fór mikinn í liði Hamars sem vann Fjölni, 102-76. Hún skoraði 30 stig og tók 21 fráköst.

Þá unnu Haukar sigur á Grindavík, 61-41. Kathleen Snodgrass skoraði 30 stig fyrir Haukana.

Grindavík-Haukar 41-61 (7-15, 11-12, 17-14, 6-20)

Grindavík: Crystal Ann Boyd 10/9 fráköst, Harpa Hallgrímsdóttir 7/4 fráköst, Helga Hallgrímsdóttir 7/10 fráköst, Agnija Reke 7/7 fráköst, Eyrún Ösp Ottósdóttir 4, Berglind Anna Magnúsdóttir 2, Alexandra Marý Hauksdóttir 2, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 2.

Haukar: Kathleen Patricia Snodgrass 30/4 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 8/7 fráköst, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 6, Gunnhildur Gunnarsdóttir 5, Íris Sverrisdóttir 4, Þórunn Bjarnadóttir 4/5 fráköst, Guðrún Ósk Ámundardóttir 2, María Lind Sigurðardóttir 2, Helga Jónasdóttir 0/13 fráköst.

Hamar-Fjölnir 102-76 (31-16, 22-16, 29-21, 20-23)

Hamar: Jaleesa Butler 30/21 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 22/4 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdóttir 16/7 fráköst, Slavica Dimovska 14/5 fráköst/8 stoðsendingar/6 stolnir, Íris Ásgeirsdóttir 8, Guðbjörg Sverrisdóttir 8, Regína Ösp Guðmundsdóttir 4/4 fráköst.

Fjölnir: Natasha Harris 23/13 fráköst/7 stoðsendingar/8 stolnir, Bergþóra Holton Tómasdóttir 19, Inga Buzoka 18/15 fráköst, Birna Eiríksdóttir 8, Dagbjört Helga Eiríksdóttir 2, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 2/5 fráköst, Erna María Sveinsdóttir 2, Eva María Emilsdóttir 2.

Keflavík-KR 92-49 (19-10, 32-11, 20-16, 21-12)

Keflavík: Jacquline Adamshick 30/12 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 14/15 fráköst/5 stoðsendingar, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 13, Pálína Gunnlaugsdóttir 11, Ingibjörg Jakobsdóttir 7, Rannveig Randversdóttir 5/9 fráköst, Aníta Eva Viðarsdóttir 3, Hrund Jóhannsdóttir 2/6 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 2, Marín Rós Karlsdóttir 2/5 stolnir, Lovísa Falsdóttir 2, Árný Sif Gestsdóttir 1.

KR: Helga Einarsdóttir 18/11 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 14/11 fráköst, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 10, Rut Konráðsdóttir 4, Ingunn Erla Kristjánsdóttir 2, Bergdís Ragnarsdóttir 1/6 fráköst/3 varin skot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×