Fótbolti

IFK Göteborg hefur áhuga á Jóni Guðna og Elfari Frey

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sænska félagið IFK Göteborg horfir fram á að missa íslenska landsliðsmanninn Ragnar Sigurðsson frá sér. Félagið vill gjarna fá annan Íslending til þess að fylla hans skarð.

Á vefsíðu Expressen í dag er greint frá því að miðverðirnir Elfar Freyr Helgason og Jón Guðni Fjóluson séu báðir undir smásjá sænska liðsins.

"Við erum ekki eina liðið sem vill fá þessa stráka," sagði Hakan Mild, íþróttastjóri Göteborg.

Sænska liðið mun hefja æfingar á ný þann 30. nóvember og segir Mild að Eflar Freyr muni mæta þá á æfingar hjá liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×