Fótbolti

Guardiola: Munum njóta sigursins í nokkra daga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo stjakar hér við Guardiola í gær.
Ronaldo stjakar hér við Guardiola í gær.

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, var að vonum himinlifandi með órúlegan sigur sinna manna á Real Madrid í gær sem skaut Barcelona á topp spænsku úrvalsdeildarinnar.

"Þessi úrslit gefa ekki alveg rétta mynd af muninum á þessum liðum. Real Madrid er virkilega gott lið sem kom hingað ósigrað á toppi deildarinnar. Allir mínir leikmenn léku vel í þessum leik og þar lá munurinn," sagði Guardiola.

"Það er auðvelt að segja eftir svona leik að við séum betri. Tíminn mun leiða í ljós hvort það sé satt. Þeir eru með frábært lið en við vorum betri í dag.

"Við höfum verið sterkari en Madrid síðustu tvö ár. Við munum njóta þessa sigurs næstu daga," bætti þjálfarinn við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×