Fótbolti

Rooney tæpur fyrir leikinn gegn Chelsea

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rooney liggur meiddur á vellinum í kvöld.
Rooney liggur meiddur á vellinum í kvöld. Nordic Photos/Getty Images

Áföllin dundu yfir Man. Utd á lokamínútunni á Allianz Arena í kvöld. Nokkrum sekúndum áður en Bayern skoraði sigurmarkið meiddist Wayne Rooney á ökkla og haltraði af velli.

„Hann fékk spark í ökklann og við verðum að bíða og sjá hvernig þetta lítur út á morgun. Vonandi er þetta ekki mjög alvarlegt. Það er þó líklegt að hann sé tæpur fyrir leikinn gegn Chelsea um helgina," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, eftir leikinn.

Þetta er ansi stór vika hjá United því síðari leikurinn gegn Bayern er í næstu viku og í millitíðinni er hálfgerður úrslitaleikur í ensku deildinni gegn Chelsea. United má því illa við því að vera án Rooney.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×