Fótbolti

Real Madrid skoraði sex mörk og minnkaði forskot Barca í tvö stig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo og Kaka voru í stuði í kvöld.
Cristiano Ronaldo og Kaka voru í stuði í kvöld. Mynd/AFP
Allir stærstu stjörnur Real Madrid liðsins voru á skotskónum í 6-2 sigri liðsins á Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en með sigrinum minnkaði Real forskot Barcelona á toppnum niður í tvö stig.

Gonzalo Higuaín og Kaka skoruðu báðir tvö mörk fyrir Real Madrid en hin mörkin gerðu þeir Cristiano Ronaldo og Xabi Alonso. Marcos Senna og Nilmar skoruðu mörk Villarreal í leiknum og minnkuðu þá muninn í 2-1 og 3-2.

Cristiano Ronaldo átti mjög flottan leik en hann skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mínútu með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu og átti síðan tvær stoðsendingar áður en hann fiskaði vítið sem Xabi Alonso skoraði sjötta og síðasta markið úr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×