Fótbolti

Heimavallarmet Mourinho stendur enn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Angel di Maria fagnar marki sínu í kvöld.
Angel di Maria fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / AFP

Real Madrid vann í kvöld nauman 1-0 sigur á baráttuglöðu liði Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Angel di Maria skoraði sigurmark leiksins á 77. mínútu en þá voru Madrídingar einum manni færri eftir að Ricardo Carvalho var rekinn af velli tíu mínútum áður.

Það voru þó gestirnir frá Sevilla sem voru lengst af betri og virtust líklegir til að ógna ótrúlegu meti þjálfarans Jose Mourinho sem hefur ekki tapað á heimavelli hvar sem hann hefur þjálfað undanfarin átta ár.

Fyrri hálfleikur var reyndar ekki mikið fyrir augað en Sevilla virtist þó líklegri aðilinn til að skora. Negredo, fyrrum leikmaður Real Madrid, fékk líklega besta færi leiksins þegar hann slapp í gegnum vörn Real Madrid í síðari hálfleik en skaut yfir mark heimamanna.

Útlitið varð ekki betra þegar að Carvalho fékk stuttu síðar að líta sína aðra áminningu í leiknum, að vísu fyrir litlar sakir, og þar með rautt.

En Di Maria gerði vel þegar hann náði fyrr til boltans við endalínuna í kapphlaupi við Palop, hinn skrautlega markvörð Sevilla. Di Maria náði svo að koma boltanum framhjá Palop og í autt markið.

Það var greinilega mikill hiti í leikmönnum en dómari leiksins lyfti gula spjaldinu tólf sinnum á loft og því rauða tvívegis. Síðara rauða spjaldið fékk Mouhamadou Dabo, leikmaður Sevilla, fyrir að sparka til Di Maria undir lok leiksins.

Real Madrid er því enn tveimur stigum á eftir Barcelona sem er á toppi deildarinnar með 43 stig. Sevilla er í ellefta sæti deildarinnar með 20 stig og hefur nú tapað fimm leikjum í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×