Fótbolti

Raul yfir sig hrifinn af Ronaldo

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Reynsluboltinn Raul hjá Real Madrid er yfir sig hrifinn af liðsfélaga sínum, Cristiano Ronaldo, og hann hrósar honum í hástert fyrir viðhorf sitt og fagmennsku.

„Boltinn væri hálfleiðinlegur ef allir væru jafnir. Hann er einhver besti atvinnumaður sem ég hef hitt. Hann er sigurvegari og vill aldrei missa af leik. Hann segir það sem honum finnst en hugsar líka alltaf um heildina," sagði goðsögnin Raul sem hefur heldur betur spilað með mörgum frábærum leikmönnum á sínum ferli.

Ronaldo hefur algjörlega höndlað pressuna sem á hann var sett fyrir tímabilið. Hann er dýrasti leikmaður heims og að spila með liði þar sem kröfurnar og væntingarnar eru gríðarlegar. Það hefur ekkert truflað hans leik því hann hefur farið á kostum í vetur.

„Hann er fyrsti maður á æfingar og sá síðasti sem fer. Ég horfi á hann og hugsa með mér að ég verði að æfa harðar og meira. Þetta er frábær náungi og algjör leiðtogi."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×