Fótbolti

Adriano kominn til Barcelona

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
GettyImages
Hinn brasilíski Adriano er kominn til Barcelona. Ekki er það framherjinn knái, heldur bakvörðurinn örvfætti sem kemur frá Sevilla.

Hann hefur spilað frábærlega undanfarin tímabil og getur reyndar spilað sem bakvörður eða miðjumaður og notað báða bætur.

"Ég var mjög spenntur. Það þarf ekki að hugsa sig tvisvar um þegar Barcelona hringir," sagði Adriano.

Hann kostaði 9,5 milljónir evra og er annar leikmaðurinn sem Barcelona kaupir í sumar, hinn er David Villa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×