Fótbolti

Lukaku: Tilbúinn undir stóra stökkið til Real Madrid

Elvar Geir Magnússon skrifar

Hjá Anderlecht í Belgíu má finna Romelu Lukaku, sautján ára sóknarmann sem er gríðarlega eftirsóttur. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Lukaku náð að skora 24 mörk í 52 leikjum fyrir Anderlecht.

Hann er sterklega orðaður við bæði Real Madrid og Chelsea en í viðtali við ESPN segir hann að draumur sinn sé að spila fyrir Madrídarliðið.

„Það væri draumur að spila á Bernabeu-vellinum. Það að Jose Mourinho sé þjálfarinn skemmir ekki fyrir. Hann getur kennt mér mikið. Sjáum til hvað gerist í sumar, ég vil ekki hugsa út í þetta fyrr en þá. Mér líður vel hjá Anderlecht en er metnaðarfullur og er tilbúinn fyrir stóra stökkið þegar það býðst," sagði Lukaku.

„Ég fylgist vel með stærstu deildunum og elska enska, spænska og þýska boltann. Ítalía er einnig með frábæra deild en hún krefst meiri reynslu. Ég mun fá ráðleggingar frá föður mínum um hvaða ákvörðun sé best."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×