Innlent

Kaupin á HS Orku líklega lögleg

Kaup Magma Energy Sweden á HS Orku eru í samræmi við lög samkvæmt þremur af fjórum mögulegum lagatúlkunum sem fjallað er um í skýrslu nefndar um orku og auðlindamál sem fjalla átti um kaupin.

Skýrsla Magma-nefndarinnar verður kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru í henni reifaðar nokkrar leiðir sem stjórnvöld hafa til að bregðast við vegna kaupa Magma. Álitamálum vegna kaupanna verði hins vegar ekki svarað nema fyrir dómstólum.

Samkvæmt heimildum blaðsins er meginniðurstaða nefndarinnar sú að kaup Magma samrýmist íslenskum lögum og að ekki hafi verið að finna augljósa annmarka á þeim samningum sem nefndin hafði til skoðunar.

Um leið munu dregnar upp ólíkar leiðir við túlkun á lögum. Einungis í einni af fjórum mögulegum túlkunum er niðurstaðan sú að kaup Magma samrýmist ekki íslenskum lögum. Til að komast að slíkri niðurstöðu þyrfti að víkja frá formlegri túlkun lagaákvæða og gefa sér að Magma Energy í Kanada væri aðili að kaupunum, ekki Magma í Svíþjóð.

Í skýrslu nefndarinnar mun þó koma fram að samkvæmt athugun hafi verið stofnað til fyrirtækisins Magma Energy í Svíþjóð með lögmætum hætti og fyrirtækið skráð í samræmi við sænskar reglur. - óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×