Innlent

Ráðherrar hitta iðnaðarnefnd

Skúli Helgason.
Skúli Helgason.

Iðnaðarnefnd Alþingis ætlar að fá umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra á sinn fund á morgun til þess að ræða stækkun friðlandsins í Þjórsárverum og áhrif þeirrar stækkunar á áform um Norðlingaölduveitu.

Fulltrúar Landsvirkjunar og sveitarfélaganna sem eiga land að Þjórsárverum eru einnig boðaðir á fund nefndarinnar, að sögn Skúla Helgasonar, formanns hennar og þingmanns Samfylkingarinnar.- pg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×