Innlent

Engin töfralausn í boði

Ólöf Nordal
Ólöf Nordal

Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir mikilvægt að búið sé að kortleggja skuldavanda heimilanna. Miðað við niðurstöður sérfræðingahópsins sé ljóst að engin ein lausn dugi ein og sér, engin töfralausn sé í boði.

Ólöf segir að ýmsar af þeim leiðum sem hafi verið ræddar, til dæmis almenn niðurfelling skulda, komi til móts við lítið hlutfall þeirra sem séu í mestum vanda. Ein af þeim leiðum sem skoða ætti betur er til dæmis hækkun vaxtabóta, segir Ólöf. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×