Fótbolti

Mourinho dásamar enska boltann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bestu vinir.
Bestu vinir.

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, líkaði lífið vel á Englandi á sínum tíma og hann hefur aldrei farið leynt með þá löngun sína að snúa aftur síðar í enska boltann.

Mourinho hefur meðal annars lýst því yfir að Sir Alex Ferguson sé besti vinur sinn í fótboltaheiminum.

"Það sem mér líkar best við England er ástríðan fyrir boltanum. Í Portúgal, Ítalíu og Spáni eru margir sem hugsa um dagana fyrir og eftir leik en ekki leikinn sjálfan," sagði Mourinho sem er enn talinn ansi líklegur arftaki Sir Alex hjá Man. Utd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×