Innlent

Atkvæðagreiðslan mun draga dilk á eftir sér: Aukin harka í pólitíkinni

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon.

Í kortunum er stormasamur vetur í stjórnmálunum. Sjálfstæðisflokkurinn mun veita ríkisstjórninni óvægna stjórnarandstöðu og samstarf stjórnarflokkanna verður stirt.

Þetta er samandregin niðurstaða eftir samtöl við þingmenn í gær.

Hafi einhver vonast til að skýrsla þingmannanefndarinnar, undir formennsku Atla Gíslasonar, myndi marka upphaf nýrra og faglegri vinnubragða á Alþingi urðu þær vonir að engu við atkvæðagreiðslurnar um landsdómsákærurnar.

Þannig er í það minnsta útlitið í dag.

Sjálfstæðismenn eru æfir út í Samfylkinguna fyrir að stuðla að ákæru á hendur Geir H. Haarde en koma í veg fyrir að Samfylkingarráðherrarnir fyrrverandi hlytu sömu örlög. Í röðum sjálfstæðismanna leikur ekki vafi á að niðurstaðan hafi verið ákveðin fyrirfram.

Ástandið milli Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar var ekki of gott fyrir. Mörgum sjálfstæðismönnum eru enn í fersku minni stjórnarslitin – svikin, eins og þeir kalla það – í janúar á síðasta ári.

Sjálfstæðismenn eru líka reiðir þeim framsóknarþingmönnum sem vildu ákæra. Einkum Siv Friðleifsdóttur sem var ráðherra í fyrri ríkisstjórn Geirs Haarde.

En sjálfstæðismenn eru ekki þeir einu sem eru reiðir. Innan VG er gremja í garð samstarfsflokksins. Þar á bæ spyrja menn sig hvernig í ósköpunum helft Samfylkingarinnar gat komist að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að ákæra nokkurn einasta mann. Þeir sem þannig spyrja svara sjálfir:

Samfylkingin hafði ekki dug í sér til að fara gegn eigin flokksmönnum. Sumir þingmenn VG líta einnig svo á að þeir Samfylkingarmenn sem voru andvígir landsdómsákærum hafi með atkvæðum sínum lýst yfir vantrausti á störf þingmannanefndarinnar og einkum Atla Gíslasonar. Er hermt að það muni líða seint úr minni.

Ekki þarf að tíunda þau mörgu vandasömu verkefni sem bíða stjórnmálamanna í vetur. Vonir um góða samvinnu virðast runnar út í sandinn. Í bili í það minnsta. Leiða má líkur að því að margumrædd endurreisn samfélagsins tefjist enn frekar en orðið er.

- bþs

d
d


f
d



Fleiri fréttir

Sjá meira


×