Fótbolti

Rooney gæti misst af síðari leiknum gegn Milan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, greindi frá því í gær að svo gæti farið að Wayne Rooney verði ekki orðinn heill heilsu fyrir síðari leik Man. Utd og AC Milan í Meistaradeildinni.

Rooney meiddist á hné í landsleik Englands og Egyptalands og spilaði þess utan nánast allan leikinn.

Ferguson vill meðal annars kenna slæmum aðstæðum á Wembley um meiðslin.

United er þegar án Michael Owen sem spilar ekki meira í vetur eftir að hafa einnig meiðst á Wembley.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×