Fótbolti

50 þúsund kvöddu Jarque

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stuðningsmenn Espanyol kvöddu Jarque í gær.
Stuðningsmenn Espanyol kvöddu Jarque í gær. Nordic Photos / AFP

50 þúsund stuðningsmenn spænska úrvalsdeildarfélagsins Espanyol fjölmenntu á leikvang félagsins í gær til að votta Daniel Jarque virðingu sína.

Jarque var fyrirliði Espanyol en hann lést á hótelherbergi sínu á Ítalíu á laugardaginn eftir að hafa fengið hjartaáfall.

Jarque tók við fyrirliðabandinu í síðasta mánuði en hann var 26 ára gamall. Fyrir tveimur árum lést annars spænskur knattspyrnumaður, Antonio Puerta, vegna hjartabilunar en hann lék með Sevilla.

Æfingaferð Espanyol á Ítalíu var aflýst og hélt liðið heim á leið í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×