Enski boltinn

Maradona vill að Tevez og Agüero fari til Inter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Carlos Tevez í leik með Manchester United.
Carlos Tevez í leik með Manchester United. Nordic Photos / Getty Images

Diego Maradona, landsliðsþjálfari Argentínu, vill að þeir Sergio Agüero og Carlos Tevez flytji sig um set til Inter á Ítalíu.

Þetta sagði hann í samtali við Corriere dello Sport á Ítalíu en hann var í Englandi um helgina og fylgdist með leik Manchester United og Chelsea.

„Um helgina sá ég Manchester United vinna leik þar sem Tevez kom ekkert við sögu. Þetta er ekki gott fyrir hann," sagði Maradona. „Það eru ýmsir þættir sem gætu stuðlað að því að hann fari annað. Ítalía og þá sérstaklega Inter væru góð lausn fyrir hann."

„Það sem meira er þá er samningur hans að renna út sem gerir það auðveldara fyrir hann að skipta um félög."

Tveggja ára lánssamningur Tevez við Manchester United rennur út í sumar og virðist ganga hægt í viðræðum United við Kia Joorabchian, sem á samningsrétt Tevez, um kaup á honum.

Maradona ráðlagði Agüero, sem leikur með Atletico Madrid, sömuleiðis að fara til Inter þar sem hann sér fyrir sér að hann gæti náð vel saman við Zlatan Ibrahimovic, sóknarmann Inter.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×