Fótbolti

Eiður í byrjunarliði Barcelona gegn Atletico

NordicPhotos/GettyImages

Nú klukkan 18 hófst stórleikur Atletico Madrid og Barcelona í spænsku deildinni. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem þarf nauðsynlega á stigum að halda í toppbárattunni.

Flestir töldu að Barcelona ætti titilinn vísan í deildinni fyrir skömmu síðan en Real Madrid hefur verið á mikilli siglingu og nú er forskot Barca aðeins fjögur stig.

Barcelona á leikinn í kvöld til góða og getur aukið forskotið upp í sjö stig á ný með sigri. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×